Velkomin á heimasíðuna okkar
Við heitum Áki Hlynur og Hekla Hrund
Við erum búinn að læsa albúminu okkar, lykilorð er millinafn Árna afa.
Hér getið þið sent mömmu og pabba póst
Áki Hlynur fæddist á Landspítalanum þann 27. mars 2002 kl.18:49. En þá var hann búinn að láta bíða eftir sér í 14 daga - svolítið rólegur -
Áki Hlynur er lítill bráðakeisari sem vóg 4510gr (18 merkur) og 53 cm. Hann fæddist með svart hár og blá augu. 'I dag eru augun blá og með brunum yrjum í eins og pabbi C",) Hárið skiptir um lit eftir árstíðum og er það ljóst á sumrin en dökkt á veturnar.
Hekla Hrund fæddist á Landspítalanum þann 20. janúar 2009 kl.22:24. Hún vóg 4025 gr. (16 merkur) og 52 cm. Hún fæddist með mjög mikið svart hár og blá augu.
Pabbi heitir Andri Árnason, hann kemur frá Vopnafirði og mamma heitir Sólveig Helga Ákadóttir og er frá Bakkafirði, við bjuggum fyrsta og hálfa árið mitt á Vopnafirði en erum nú flutt til Reykjavíkur, við eigum íbúð í Eskihlíð og erum mjög ánægð þar.

Áki Hlynur er í fyrsta bekk í Hlíðaskóla og finnst bara voða gaman í skólanum. Hann er að æfa handbolta með 8. flokki Vals og hefur líka gaman af fótbolta. Hann er að læra á píanó og hefur mjög gaman af tónlist. Áki Hlynur er líka mikill verkmaður og læt sko ekki sitt eftir liggja þegar kemur að framkvæmdum á heimilinu.
Hekla Hrund er mjög vær og góð prinsessa. Hún sefur mjög mikið eða allt upp í 20 tíma á sólarhring. Hún er lætur samt vel í sér heyra á milli og notar þá lungun vel. Hún brosir breytt og hefur mjög gaman af bróður sínum.
Við eru ekki lengur dugleg við að skrifa í vefdagbókina en myndir eru alltaf settar í albúmið mitt svo vinir og fjölskylda getað skoðað mig reglulega, svo er alltaf gaman að fá kveðja í gestabókina, takk fyrir innlitið.
ENDILEGA SKRIFIÐ Í GESTABÓKINA MÍNA !
María Björt , Ásdís Fjóla og Kristian Árni
Andrea og Hildur
Tara Tíbrá
Fanney Rós og Iðunn Embla
Sunneva Rún
Berghildur Ösp og Ásgerður Ólöf
Skírnir Freyr og Fjölnir
Arnór Freyr og Aníta Ósk
Apríl Emma
Heimir Andri
Systurnar á Kletti
Elli,Tinna og Hilmar Freyr
Jóna Sigríður
Vopnafjörður
Bakkafjörður
Áki Hlynur er HRÚTUR
21. mars - 19. apríl
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér - það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á.
Hekla Hrund er VATNSBERI
20. janúar - 18. febrúar
Vatnsberabarnið fer fljótt sínar eigin leiðir hvort sem það er í fataburði, hugsun eða hegðun. Það er uppfinningasamt, frumlegt og fullorðinslegt og lærir snemma að tjá sig og skila heim fullorðinna. Litli vatnsberinn vill sjá um sig sjálfur og fara sínu fram og er oft á tíðum mjög dramatískur. Ef honum leiðist gæti hann átt það til að stofna til vandræða bara til að fá spennu og drama inn í líf sitt. Besta uppeldisaðferðin er fólgin í umræðu og skynsamlegum fortölum. Vatnsberinn er þrjóskur og lítið þýðir að skipa honum fyrir eða beygja hann til hlýðni með skömmum. Best er að koma fram við barnið sem vitsmunalegan jafningja því vatnsberinn er hugarorkumerki og því skipa umræður og skynsamlegar fortölur fyrsta sæti. Vatnsberabörnin geta sýnt ást og væntumþykju á frekar ópersónulegan hátt. Þau eru yfirleitt vingjarnleg og yfirveguð en ekki mjög tilfinningasöm og oft illa við mikið kjass.